Fréttir 2026
20/03 2026
Ársreikningur EBÍ
Á fundi sínum þann 13. febrúar sl. samþykkti stjórn EBÍ ársreikning vegna ársins 2025. Heildartekjur félagsins voru um 171 milljón og rekstrargjöld 117 milljónir. Áfallinn fjármagnstekjuskattur á árinu var 39,6 milljónir og hagnaður félagsins því 13,6 milljónir. Heildareignir félagsins eru tæpir 2,9 milljarðar og eigið fé um 1,7 milljarðar.
Ársreikninginn í heild sinni má sjá hér.
Nafnávöxtun eigna félagsins var jákvæð um 6,14% og raunávöxtun var 2,36%. Allir eignaflokkar skiluðu jákvæðri ávöxtun nema innlend hlutabréf. Stærsti hluti eignasafns félagsins, eða um 58%, eru skuldabréf og innistæður með ábyrgð ríkissjóðs og sveitarfélaga en síðan eru það erlend hlutabréf sem eru um 10,6% af eignasafninu og innlend hlutabréf eru um 9,5 % safnsins.
20/03 2026
Fjárfestingastefna EBÍ
Fjárfestingastefna Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands fyrir árið 2026 var samþykkt í stjórn EBÍ þann 13. febrúar sl.
Örlitlar breytingar voru gerðar á stefnunni frá fyrra ári sem fólust í því að hlutur ríkistryggðra bréfa var aukinn en eignaflokkurinn Sértryggð skuldabréf lækkaði á móti. Var breytingin 2%.
Áfram er það meginmarkmið stefnunnar að EBÍ standi undir skilgreindum markmiðum um árlega útgreiðslu ágóðahlutar til aðildarsveitarfélaga EBÍ. Stjórn félagsins er falið að ákveða endanlega upphæð ágóðahlutarins en við ákvörðun hans skal hafa í huga að lágmarkaðar séu líkur á því að skerða þurfi höfuðstól á milli ára.
Eignastýringu félagsins er úthýst til þriggja fjárvörsluaðila sem allir vinna eftir fyrir fram skilgreindum fjárfestingastefnum.
Fjárfestingastefnu félagsins í heild sinni má nálgast hér.
